Hversu full er fatan þín?

Við eigum öll okkar myndrænu, ósýnilegu fötu sem við tökum með okkur hvert sem við förum. Í fötunni geymum við tilfinningar okkar. Fatan fyllist af jákvæðum samskiptum eins og klappi á bakið eða fallegum orðum í okkar garð – oftast litlum hlutum, sjaldnast stórum hlutum eins og stöðu- eða launahækkun. Fatan okkar tæmist af neikvæðum samskiptum eins og t.d. neikvæðum hugsunum eða gagnrýni annarra. Okkur líður frábærlega þegar fatan okkar er full, og hörmulega þegar hún er tóm. Því meira sem er í fötunni okkar, því auðveldara verður að deila umfram magninu með öðrum. 

Í fyrirlestrinum verður farið í leiðir til að fylla fötuna.

Fyrirlesari: Ingrid Kuhlman

Skráning á póstlista  |    |  

thekkingarmidlun@thekkingarmidlun.is  Þekkingarmiðlun sími: 892 1987 / 892 2987 |