Vinsemd í eigin garð
Við eigum það gjarnan til að kalla okkur illum nöfnum, draga úr okkur eða fara aftur og aftur yfir mistök í huganum. Í stað þess að klappa okkur á bakið rökkum við okkur niður og berjum áfram með svipu. Slík sjálfsgagnrýni er frekar algeng. Guðni Gunnarsson lífsráðgjafi segir sem dæmi að meðalmanneskja hafni sér 800 sinnum á dag. Þar af leiðandi verjum við miklum tíma í sjálfsvorkunn, viðnám og síðan réttlætinguna á því. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að það að dæma sjálfan sig á neikvæðan hátt getur dregið úr frammistöðu okkar. Lykillinn að aukinni vellíðan og betri árangri er að sýna vinsemd í eigin garð.
Þrír þættir sjálfsvinsemdar
Sjálfsvinsemd eða -góðvild snýst um vingjarnlega en raunhæfa afstöðu til sjálfs síns. Samkvæmt Dr. Kristin Neff, sem er frumkvöðull í rannsóknum á sjálfsvinsemd, samanstendur hún af þremur þáttum:
- Vinsemd í eigin garð; að sýna sjálfum sér skilning og stuðning og skipta harðri sjálfsgagnrýni út fyrir mildari og jákvæðari orð.
- Sameiginleg manngæska, sem er viðurkenningin á því að þjáningar og það að ná ekki settu marki séu óhjákvæmilegur hluti af lífinu.
- Núvitund, sem felur í sér að fylgjast með neikvæðum tilfinningum án þess að ýkja þær, dæma eða bæla.
Það að sýna vinsemd í eigin garð hefur margvíslega kosti í för með sér. Rannsóknir hafa t.d. sýnt fram á félagslegan, sálfræðilegan og líkamlegan ávinning:
- Aukin hvatning: Samkvæmt rannsókn Háskólans í Kaliforníu frá 2011 getur sjálfsvinsemd aukið hvatninguna til að ná sér eftir bakslag. Rannsakendur komust að því að nemendur vörðu meiri tíma í að undirbúa sig undir upptökupróf ef þeir sýndu góðvild í eigin garð. Þeir sýndu líka meiri áhuga á að vinna í veikleikum sínum.
- Aukin hamingja: Í rannsókn sem birtist í Journal of Research in Personality árið 2007 kom fram að sjálfsvinsemd tengist hamingju, bjartsýni, visku, persónulegu frumkvæði og forvitni.
- Betri líkamsmynd: Fjölmargar rannsóknir hafa tengt sjálfsvinsemd við heilbrigðari líkamsmynd og minni skömm. Rannsókn sem var framkvæmd árið 2012 sýndi fram á að þeir sem sýna vinsemd í eigin garð eru minna uppteknir af eigin framkomu, hafa minni áhyggjur af líkamsþyngd og kunna betur að meta eigin líkama.
- Meiri sjálfsvirðing: Sjálfsvinsemd kemur innan frá. Rannsókn sem birtist í Journal of Research in Personality árið 2009 sýndi að sjálfsvinsemd gerir okkur kleift að sýna jákvætt viðhorf í eigin garð þrátt fyrir mistök, upplifaða vanhæfni eða ófullkomleika.
- Aukin seigla: Vinsemd í eigin garð kemur okkur langa leið þegar við þurfum að takast á við mótlæti eða bakslag. Rannsóknir sýna ítrekað að sjálfsvinsemd er lykilatriði þegar við stöndum andspænis erfiðleikum. Rannsókn sem birtist í Psychological link árið 2011 sýndi t.d. að fólk sem sýnir vinsemd í eigin garð nær sér betur á strik eftir skilnað.
- Færri sálfræðileg vandamál: Vinsemd í eigin garð getur dregið úr andlegum sjúkdómum. Rannsókn sem birtist í Clinical Psychology Review árið 2012 sýndi t.d. fram á að sjálfsvinsemd dregur úr kvíða og þunglyndi auk þess sem hún dregur úr skaðlegum áhrifum streitu.
Birtist á Pressunni 20. október 2015