Að auka vellíðan
Jákvæð sálfræði er vísindaleg nálgun sem hefur það markmið að efla rannsóknir á jákvæðum þáttum mannlegrar hegðunar eins og styrkleikum, vellíðan, velgengni, þakklæti, seiglu, gildum (dyggðum), von, jákvæðum tilfinningum, tilgangi, bjartsýni og hamingju. Hún veltir fyrir sér hvað einkennir einstaklinga sem ná á farsælan hátt að þroskast og aðlagast ólíkum aðstæðum í lífinu og finnur leiðir til að skapa umhverfi þar sem einstaklingur nær að blómstra og lifa sínu besta lífi.
Í fyrirlestrinum er farið í hvað rannsóknir á velferð einstaklinga hafa leitt í ljós og hvernig er hægt að mæla hana. Fjallað verður um hamingjuaukandi leiðir sem eru byggðar á rannsóknum á því hvað eykur vellíðan og hamingju. Farið verður í mikilvægi þess að þekkja og efla styrkleika sína en með því aukum við líkurnar á að við blómstrum og getum lifað okkar besta lífi.