Að eiga við erfiða einstaklinga 7. júní kl. 9-12 á ZOOM
Erfiðir einstaklingar kosta mikla orku og tíma. Við ergjum okkur á hegðun þeirra og upplifum okkur hjálparvana því það er erfitt að taka á þeim. En það er einmitt ergelsið sem fær okkur til að grípa til aðgerða, samt ekki alltaf bestu aðgerðanna eins og að svara í sömu mynt. Mikilvægt er að átta sig á því að við höfum alltaf val um að minnsta kosti fimm leiðir þegar við lendum í erfiðum samskiptum. Auðveldast er t.d. til skamms tíma að gera ekki neitt og láta vaða yfir okkur. En stundum er gott að taka umræðuna og ákveða að standa á sínu.
Í vinnustofunni fá þátttakendur tækifæri á að koma með dæmi um hvernig hegðun þeir vilji ræða (órekjanleg dæmi) sem eru síðan rædd í hópnum og af leiðbeinanda. Meðal þess sem er farið yfir er hlutverk tilfinninga í krefjandi samskiptum, hjá okkur og öðrum. En ótti og reiði eru oft afleitir ráðgjafar. Einnig er farið yfir ásetning okkar en góður ásetningur er líklegur til að skila okkur miklu meiri árangri en slæmur. Þekkt hugsanavilla er kynnt sem fjallar um tilhneigingu okkar til að sjá bara tvær leiðir og oftast báðar slæmar. Einnig er farið yfir sögurnar þrjár sem við segjum við okkur sjálf þegar við lendum í erfðum aðstæðum en þær eru um illmennin, sakleysingjana og fórnarlömbin. Sagt er frá rannsóknum á því hvað þeir bestu gera. Hlutverk samstarfsmanna er einnig mikilvægt eins og að sýna stuðning og vera til staðar.
Námskeiðið hentar öllum þeim sem segja: Hingað og ekki lengra!
- Að spegla hegðun
- Tilfinningar og krefjandi samskipti
- Ásetningur í samskiptum
- Virk hlustun, skilningur og samkennd
- Sögurnar þrjár og hvernig þær stjórna okkur
- Meiri innsýn í hegðun fólks í krefjandi aðstæðum
- Aukin hæfni í að takast á við erfiða hegðun
- Hagnýtar aðferðir
- Þekking á því hvað virkar
- Fyrirlestur
- Umræður
- Virk þátttaka
Leiðbeinandi: Eyþór Eðvarðsson, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.
Námskeiðsgjald: kr. 25.000
Nánari upplýsingar og skráning á: thekkingarmidlun@thekkingarmidlun.is