Hvenær gerðir þú síðast góðverk?
Góðverk gleðja ekki bara þiggjendum heldur einnig gerendum. Að rétta öðrum hjálparhönd óumbeðið og gefa af sér fær mann til að líða vel í hjartanu. Góðverk þurfa ekki að vera stór því að það er hugurinn sem skiptir öllu. Það þarf oft lítið til að gleðja aðra mikið.
Hér eru aðeins örfáar hugmyndir að góðverkum:
• Gerðu tvöfaldan skammt af t.d. smákökum eða eftirlætisrétti og gefðu nágranna eða vinum.
• Mokaðu snjó fyrir nágrannann þegar þú ert búin með þína stétt.
• Lærðu skyndihjálp. Þú veist aldrei hvenær þú þarft á því að halda.
• Haltu hurðinni opinni fyrir fólk, sérstaklega fólk sem heldur á pokum eða börnum.
• Bjóddu þeim sem er fyrir aftan þig í röðinni með fáa hluti í innkaupakerrunni um að vera á undan.
• Bjóddu börnum vina í bíó, lautarferð eða fjallgöngu svo að foreldrarnir geti slakað á.
• Bjóddu þig fram í sjálfboðavinnu hjá góðgerðarsamtökum.
• Tíndu mat í aukapoka og gefðu hann til Mæðrastyrksnefndar.
• Færðu nýbökuðum foreldrum kvöldmat.
• Aðstoðaðu fólk úti á götu sem virðist villt og vísaðu því til vegar.
• Gefðu blóð – með því gætirðu verið að bjarga lífi. Blóðbankinn þarf 70 blóðgjafa á dag.
• Aðstoðaðu eldri borgara með því að bera innkaupapokana út í bíl eða hjálpa þeim yfir götuna í hálkunni.
• Gefðu notuð föt til Rauða krossins.
• Bjóðstu til að passa barn vinahjóna svo að þau geti átt rómantískt kvöld saman.
• Farðu með gömlu tímaritin eða bækurnar á biðstofu spítalans.
• Farðu í heimsókn á elliheimili til að spjalla við íbúa eða syngja fyrir þau.
• Skrifaðu þakklætisbréf til vinar eða fjölskyldumeðlims.
• Aðstoðaðu fólk í hjólastól eða með barnavagn upp eða niður tröppurnar.
• Haltu umhverfinu hreinu. Taktu upp plastflöskur og annað rusl og settu í ruslafötuna.
• Bros er smitandi og getur yljað fólki um hjartaræturnar. Brostu til þeirra sem þú hittir.
• Deildu góðri grein eða myndbandi með þeim sem gætu haft gagn eða gaman af.
• Láttu það berast ef þú ert ánægð(ur) með veitingastað eða þjónustu.
• Komdu makanum á óvart með morgunmat í rúmið.
• Hrósaðu fyrir það sem vel er gert.
Með því að gera góðverk getum við gert heiminn örlítið betri.
Birtist á Pressunni 7. janúar 2015