Að auka seiglu
Árið 2002 kom út metsölubók eftir
Karen Reivich Ph.D. og Andrew Shatté Ph.D. sem nefnist The Resilience Factor.
Í bókinni segja höfundar frá víðtækum rannsóknum sínum á því hvernig
framúrskarandi einstaklingar takast á við mótlæti og erfiðleika í leik og
starfi. Það mikilvægasta er hvernig þeir hugsa og hvernig þeir vinna úr þeim
atburðum sem gerast í kringum þá. Á fræðimáli kallast þessi eiginleiki „seigla“ (e. resilience). Við þurfum öll á seiglu að halda til að ná okkur
eftir mótlæti og takast á við daglegar hindranir.
Við höfum öll tilhneigingu til að nota ákveðinn hugsunarstíl til að útskýra það sem gerist í lífi okkar og hvers vegna það gerist. Við þróum þennan stíl í æsku og höldum okkur við hann það sem eftir er ævi okkar, nema við tökum meðvituð skref til að breyta honum. Hugsunarstíllinn virkar eins og viðmið sem við notum til að útskýra fyrir sjálfum okkur hvers vegna hlutir, slæmir eða góðir, hendi okkur. Hægt er að auka seigluna með því að breyta hugsunarstílnum sínum.
Á námskeiðinu
er farið í sjö þætti seiglu, hvernig þeir birtast og
hvaða áhrif þeir hafa á einstaklinga og árangur. Farið er í hagnýtar æfingar
sem auka seiglu og gefa innsýn í eigin hugsanir og orsakagreiningar.
Meðal þess sem er tekið fyrir á námskeiðinu:
- Sjö þættir seiglu.
- Mat á aðstæðum og orsökum.
- Áhrif hugsana á hegðun.
- Tæki og tól til að auka seiglu.
Ávinningur:
- Betri innsýn í eigin hugsanir.
- Aukin seigla.
- Aukin hæfni til að takast á við mótlæti.
- Betri lausn vandamála.
Kennsluaðferðir:
- Fyrirlestur
- Hagnýtar æfingar.
- Umræður.
- Virk þátttaka.
Lengd: Námskeiðið er 6 klst. að lengd. Hægt er að skipta því í tvo hluta eða 2 x 3 klst.
Leiðbeinandi:
Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.