18.000 kr.

Vinnupersónuleikar

Námskeið fyrir stjórnendur

Lengd:

3 klst.

Námskeiðslýsing

Ein af merkilegri kenningum um samstarf í hópum er kenningin um hóphlutverk eftir breska sálfræðinginn Meredith Belbin. Belbin hefur um árabil rannsakað hópa og hvað það er sem gerir þá árangursríka. Bók hans, Management Teams, hefur verið nefnd m.a. af Financial Times sem ein af fimmtíu bestu bókum um stjórnun frá upphafi. Belbin greinir átta hlutverk sem einstaklingar í hópum virðast ganga í. Hver hópur hefur þörf fyrir ákveðna blöndu af þessum átta hlutverkum til að geta skilað árangri. Þetta þýðir til dæmis að hópur framúrskarandi einstaklinga getur skilað lélegum árangri ef ekkert jafnvægi er í samsetningu hlutverkanna. Á sama hátt geta hópar sem myndaðir eru af einstaklingum sem fyrirfram eru ekki taldir líklegir til stórverka náð mjög góðum árangri ef hlutverkin eru í jafnvægi.

Belbin greinir á milli átta hóphlutverka og flestir eru aðeins góðir í tveimur eða þremur þeirra. Aðeins í þeim hlutverkum finnur fólk sig og nær að skila góðu og ósviknu framlagi til hópsins.

Á námskeiðinu eru teknir fyrir mismunandi vinnupersónuleikar og hvernig þeir starfa saman. Þátttakendur greina eigið hóphlutverk.

Leiðbeinandi

Eyþór Eðvarðsson eða Ingrid Kuhlman, þjálfarar og ráðgjafar hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Meðal þess sem er tekið fyrir:

  • Einkenni árangursríkra hópa
  • Vinnupersónuleikar einstaklinga
  • Styrkleikar og veikleikar vinnupersónuleika
  • Einkenni skilvirkra hópa

Ávinningur

  • Innsýn í eigin vinnupersónuleika og annarra
  • Skilningur á algengum samstarfsörðugleikum
  • Meiri árangur í hópstarfi
  • Meiri innsýn í styrkleika og veikleika samstarfsmanna

Kennsluaðferðir

  • Spurningalisti Belbin
  • Fyrirlestur
  • Umræður
  • Virk þátttaka
Vinnupersónuleikar Námskeið fyrir stjórnendur Lengd: 3 klst. Námskeiðslýsing Ein af merkilegri kenningum um samstarf í hópum er kenningin um hóphlutverk eftir breska sálfræðinginn Meredith Belbin. Belbin hefur um árabil rannsakað hópa og hvað það er sem gerir þá árangursríka. Bók hans, Management Teams, hefur verið nefnd m.a. af Financial Times sem ein af fimmtíu bestu bókum um stjórnun frá upphafi. Belbin greinir átta hlutverk sem einstaklingar í hópum virðast ganga í. Hver hópur hefur þörf fyrir ákveðna blöndu af þessum átta hlutverkum til að geta skilað árangri. Þetta þýðir til dæmis að hópur framúrskarandi einstaklinga getur skilað lélegum árangri ef ekkert jafnvægi er í samsetningu hlutverkanna. Á sama hátt geta hópar sem myndaðir eru af einstaklingum sem fyrirfram eru ekki taldir líklegir til stórverka náð mjög góðum árangri ef hlutverkin eru í jafnvægi. Belbin greinir á milli átta hóphlutverka og flestir eru aðeins góðir í tveimur eða þremur þeirra. Aðeins í þeim hlutverkum finnur fólk sig og nær að skila góðu og ósviknu framlagi til hópsins. Á námskeiðinu eru teknir fyrir mismunandi vinnupersónuleikar og hvernig þeir starfa saman. Þátttakendur greina eigið hóphlutverk. Leiðbeinandi Eyþór Eðvarðsson eða Ingrid Kuhlman, þjálfarar og ráðgjafar hjá Þekkingarmiðlun ehf. Meðal þess sem er tekið fyrir: Einkenni árangursríkra hópa Vinnupersónuleikar einstaklinga Styrkleikar og veikleikar vinnupersónuleika Einkenni skilvirkra hópa Ávinningur Innsýn í eigin vinnupersónuleika og annarra Skilningur á algengum samstarfsörðugleikum Meiri árangur í hópstarfi Meiri innsýn í styrkleika og veikleika samstarfsmanna Kennsluaðferðir Spurningalisti Belbin Fyrirlestur Umræður Virk þátttaka
Dimension (L x W x H) 20 x 15 x 10 Inch
Weight 900 Gram