Eyþór

Eyþór Eðvarðsson er stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun. Hann lauk MA-gráðu í vinnusálfræði frá Free University í Amsterdam og hefur starfað við stjórnendaþjálfun og ráðgjöf á Íslandi og í Hollandi frá árinu 1996.

Á árunum 1996 til 1998 starfaði Eyþór hjá de Baak, stjórnunarskóla hollenska vinnuveitendasambandsins, þar sem hann hafði umsjón með stjórnendanámskeiðum og sinnti stjórnendaþjálfun. Hann var jafnframt ritstjóri stjórnendatímarits skólans og ritstýrði bókaröð um ýmis viðfangsefni tengd stjórnun.

Eyþór býr yfir áratugalangri reynslu af stjórnendaþjálfun og ráðgjöf og hefur unnið með fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum um land allt, meðal annars flestum stærri fyrirtækjum landsins. Hann hefur komið að fjölbreyttum verkefnum, stórum sem smáum, bæði á tímum uppgangs og þegar fyrirtæki hafa staðið frammi fyrir krefjandi aðstæðum og breytingum.

Eyþór hefur skrifað fjölda greina í íslensk og erlend tímarit um meðal annars tilfinningagreind, stjórnun, samskipti, breytingar, starfsánægju og vinnustaðamenningu. Hann var einnig, ásamt Ingrid Kuhlman, ritstjóri bókarinnar Management van mensen (Stjórnun fólks), sem kom út í Hollandi árið 1998.

Auk starfa sinna við þjálfun og ráðgjöf hefur Eyþór tekið virkan þátt í félags- og samfélagsmálum. Hann var formaður Súgfirðingafélagsins frá 2013 til 2015 og er formaður Fornminjafélags Súgandafjarðar, sem stofnað var árið 2014.

Image

Eyþór Eðvarðsson

Stjórnendaþjálfari og ráðgjafi
eythor@thekkingarmidlun.is
s: 892 1987
Image
Við sérhæfum okkur í því að miðla þekkingu með námskeiðum, þjálfun og fyrirlestrum.

Hafa samband

Þekkingarmiðlun ehf. 
Kt. 440102-2550

Ingrid, s. 892 2987
ingrid@thekkingarmidlun.is

Eyþór, s. 892 1987
eythor@thekkingarmidlun.is