Við viljum flest vera stolt af eigin verkum, eiga góð samskipti við samstarfsfólk og vinna saman að sameiginlegum markmiðum. En þótt allir hafi góðan ásetning er farsælt samstarf langt frá því að vera sjálfgefið. Rétt eins og í hjónabandi, þar sem 50% þeirra endar með skilnaði, geta væntingar verið miklar og fyrirheitin fögur, en raunveruleikinn reynst talsvert flóknari!
Hvað einkennir gott samstarf? Hvers vegna ná sumir hópar frábærum árangri á meðan aðrir glíma við samskiptaörðugleika, vantraust og ágreining? Og hvað getur hver og einn gert til að stuðla að betri liðsheild og meiri starfsánægju?
Í fyrirlestrinum verður fjallað um lykilþætti árangursríks samstarfs og hvað þarf til að byggja upp sterka liðsheild. Meðal annars verður stuðst við hugmyndir Patricks Lencioni úr metsölubókinni The Five Dysfunctions of a Team, þar sem hann greinir fimm algengar hindranir sem geta staðið í vegi fyrir góðu samstarfi og árangri teyma.
Einnig verður fjallað um niðurstöður umfangsmikilla rannsókna sem Marcus Buckingham og Curt Coffman byggðu á í bókinni First, Break All the Rules. Þær varpa ljósi á hvað einkennir framúrskarandi stjórnendur og hvaða þættir skipta máli fyrir starfsánægju, virkni og árangur starfsfólks.
Hamingjufræði kemur einnig við sögu og þá vaknar áhugaverð spurning: Hver ber ábyrgð á hamingju okkar og vellíðan í vinnunni? Er það ég, yfirmaðurinn, vinnufélagarnir, skuldirnar, kreppan eða kannski kokkurinn í mötuneytinu? Ætlum við að bíða eftir að einhver annar smíði okkar gæfu? Sagan góða frá englinum um himnaríki og helvíti á einnig við þegar rætt er um gott samstarf.
Með skemmtilegum sögum, húmor og hagnýtum dæmum verður varpað ljósi á hvernig við getum öll lagt okkar af mörkum til að skapa betri samskipti, aukna starfsánægju og sterkari liðsheild.
Fyrirlesari: Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun

