Starfslok marka mikil tímamót í lífi okkar. Eftir áratugi á vinnumarkaði tekur við nýr kafli sem getur falið í sér aukið frelsi, ný tækifæri og meiri tíma til að njóta lífsins. En starfslokum fylgja líka breytingar og ýmsar spurningar sem mikilvægt er að huga að tímanlega.
Hvernig verður fjárhagsstaðan þegar launatekjurnar hætta að berast? Hversu mikinn lífeyri má búast við að fá úr lífeyrissjóðum og frá Tryggingastofnun? Hvað þarf að hafa í huga varðandi sambúð, erfðamál og önnur réttindi? Og ekki síður, hvernig getum við undirbúið okkur félagslega og persónulega fyrir þessi nýju tímamót?
Í þessum hagnýta fyrirlestri fer Guðmundur Ragnarsson, sem hefur mikla reynslu af þessum málum, yfir helstu atriðin sem mikilvægt er að huga að þegar styttist í starfslok. Fjallað er um lífeyrisréttindi, fjárhagslega áætlanagerð og hvar hægt er að nálgast upplýsingar um eigin stöðu. Einnig er rætt um sambúðar- og erfðamál og mikilvægi þess að ganga frá þeim tímanlega til að forðast óþarfa áhyggjur og óvissu.
En góð eftirlaunaár snúast um meira en fjármálin ein. Guðmundur beinir einnig sjónum að félagslegum breytingum, lífsgæðum og mikilvægi þess að njóta lífsins á meðan heilsan leyfir.
Markmið fyrirlestursins er að hjálpa þátttakendum að undirbúa starfslokin af öryggi og bjartsýni, taka upplýstar ákvarðanir og skapa góðar forsendur fyrir ánægjulegum eftirlaunaárum.
Fyrirlesturinn hentar sérstaklega fólki yfir fimmtugu sem vill undirbúa starfslokin tímanlega og fara úr því að halda, sem veldur áhyggjum, yfir í að vita, sem veitir öryggi. Markmiðið er að eiga áhyggjulaust ævikvöld.
Fyrirlesari: Guðmundur Ragnarsson er vélfræðingur og starfaði sem formaður VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna í 10 ár. Hann var stjórnarmaður í Gildi lífeyrisjóði í 8 ár og sat í miðstjórn ASÍ í 10 ár. Hann rekur í dag GR ráðgjöf og veitir fólki persónulega ráðgjöf varðandi starfslok.


