Hefur þú einhvern tímann ákveðið að breyta einhverju í lífi þínu, til dæmis að hreyfa þig meira, bæta mataræðinu, taka betur á fjármálunum eða tileinka þér nýjar venjur í starfi, en átt erfitt með að fylgja ákvörðuninni eftir? Þá ertu sannarlega ekki ein(n) um það.
Okkur er oft sagt að viljastyrkur sé lykillinn að breytingum. En rannsóknir sýna að viljastyrkur er aðeins einn af mörgum þáttum sem hafa áhrif á hegðun okkar og ákvarðanir. Til að ná varanlegum árangri þurfum við að skilja hvað hvetur okkur áfram, hvað heldur aftur af okkur og hvernig við getum skapað aðstæður sem styðja við þær breytingar sem við viljum gera.
Í þessum fróðlega og hagnýta fyrirlestri er fjallað um sex lykilþætti sem hafa áhrif á hegðun okkar og möguleika til breytinga. Þeir snúa að persónulegri hvatningu og hæfni, félagslegum áhrifum og stuðningi, ásamt því hvernig umbun, umhverfi og skipulag geta ýmist auðveldað eða hindrað breytingar.
Með skýrum útskýringum og raunhæfum dæmum fá þátttakendur innsýn í hvernig hægt er að nýta þessa sex þætti til að breyta venjum, yfirstíga hindranir og ná markmiðum, bæði í einkalífi og starfi.
Því raunverulegar breytingar snúast ekki bara um að vilja nógu mikið, heldur líka um að skapa réttu aðstæðurnar til að ná árangri.

