Um sjálfsmildi, sjálfsfyrirgefningu og það að leyfa sér að vera mannlegur
Í þessum einlæga og persónulega fyrirlestri segir Sóley Eiríksdóttir frá ferðalaginu frá því að vera ung stúlka sem lifði af snjóflóð til þess að vera fullorðin kona sem áttaði sig á að hún hafði lifað í stöðugu viðbragðsástandi (survival mode) í áratugi.
Hún lýsir því hvernig innri gagnrýnandinn fylgdi henni hvert fótmál og sannfærði hana um að sama hversu mikið hún legði á sig, þá væri það aldrei nóg. Hún þyrfti alltaf að vera sterkari, gera betur og leggja enn harðar að sér.
En svo kom að því að hún varð þreytt á að reyna stöðugt að bæta sig, elta ný markmið og laga það sem hún taldi vera að sjálfri sér. Í staðinn kviknaði önnur löngun, að finna meiri frið og læra að vera sátt við sjálfa sig.
Úr þeirri vegferð varð þessi fyrirlestur til.
Með einlægni, hreinskilni og persónulegri reynslu býður Sóley áheyrendum að skoða hvernig áföll, uppeldi og lífsreynsla móta sjálfsmynd okkar, hugsanamynstur og þær kröfur sem við gerum til okkar sjálfra. Hún vekur til umhugsunar um mikilvægi sjálfsmildi og sjálfsfyrirgefningar og hvernig aukinn skilningur á eigin viðbrögðum getur hjálpað okkur að mæta okkur sjálfum af meiri hlýju og mildi.
Sóley Eiríksdóttir er fyrirlesari, markþjálfi og höfundur bókarinnar Nóttin sem öllu breytti, Snjóflóðið á Flateyri. Hún lifði af snjóflóðið á Flateyri árið 1995, þar sem hún missti systur sína. Sú lífsreynsla hefur haft djúpstæð áhrif á hana og vakið spurningar um sorg, seiglu, sjálfsmynd og hvernig áföll móta líf okkar.
Í dag fléttar Sóley saman persónulegri reynslu sinni og þekkingu á jákvæðri sálfræði og markþjálfun til að vekja fólk til umhugsunar um sjálfsmildi, sjálfsvirðingu og þau hugsana- og hegðunarmynstur sem móta líðan okkar, ákvarðanir og sambandið við okkur sjálf.
Sóley er með BA-próf í sagnfræði, MSc-próf í verkefnastjórnun og meistaradiplómu í jákvæðri sálfræði. Auk þess hefur hún lokið grunn- og framhaldsnámi í markþjálfun.
![]()

