Öll hlæjum við, mismikið, af ólíkum ástæðum og hvert með okkar einstaka hætti. En hvað er það eiginlega sem fær okkur til að hlæja? Þarf eitthvað að vera fyndið til að kalla fram hlátur? Getum við hlegið án nokkurrar ástæðu og jafnvel haft gott af því?
Hlátur er merkilegt fyrirbæri sem hefur áhrif á bæði líkama og huga. Hann getur losað um spennu, dregið úr streitu, aukið vellíðan og styrkt tengsl okkar við annað fólk. Hlátur er líka smitandi og getur á augabragði breytt andrúmsloftinu, hvort sem er á vinnustað, í góðra vina hópi eða heima í stofu.
En hlátur er ekki alltaf það sem hann sýnist. Hvers vegna hlæjum við stundum við óviðeigandi aðstæður? Geta dýr hlegið? Er allur hlátur jákvæður? Og hvers vegna er nánast ómögulegt að halda aftur af hlátrinum þegar einhver annar fær hláturskast?
Í þessum bráðskemmtilega fyrirlestri er hláturinn skoðaður frá ýmsum sjónarhornum. Fjallað er um hvað gerist í líkama okkar og huga þegar við hlæjum, hvaða áhrif hlátur hefur á líðan, samskipti og samstarf og hvernig hægt er að nýta mátt hans í daglegu lífi og starfi. Einnig verða kynntar mismunandi, og stundum stórfurðulegar, tegundir hláturs ásamt einföldum leiðum til að kalla fram meiri gleði og hlátur í hversdeginum.
Fyrirlesturinn er í senn fræðandi, fyndinn og fullur af óvæntum fróðleik. Hann hentar öllum hópum sem vilja létta lundina, efla samheldni og uppgötva hvers vegna hláturinn er svo mikilvægur hluti af lífinu. Og hver veit nema einhverjir fari heim með harðsperrur í hláturvöðvunum
Fyrirlesari: Finnbogi Þorkell Jónsson er leikari, hláturjógaleiðbeinandi, textasmiður og leiðsögumaður. Hann hefur rekið Gleðismiðjuna síðan 2019 og hefur víðtæka reynslu af því að vinna með hlátur og leikgleði í fjölbreyttu samhengi 😊


