Streita hefur lengi haft á sér slæmt orð. Við tengjum hana gjarnan við álag, vanlíðan og heilsufarsvandamál. En hvað ef streita er ekki alltaf óvinurinn? Hvað ef við getum lært að nýta þetta öfluga viðbragð líkamans okkur til góðs?
Rannsóknir undanfarinna ára hafa varpað nýju ljósi á eðli streitu og sýnt að hún getur einnig haft jákvæð áhrif. Streituviðbragðið getur hjálpað okkur að virkja orku, auka einbeitingu, takast á við áskoranir og bæta frammistöðu. Það sem meira er, hvernig við hugsum um streitu getur haft áhrif á hvernig við upplifum hana og bregðumst við henni. Sem dæmi þá eru þeir sem trúa því að streita sé slæm líklegir til að upplifa neikvæðar afleiðingar af þessu kröftuga viðbragði. Þeir sem aftur á móti hafa tilgang í lífinu, hugsa um aðra og trúa því að streita sé góð eru í næstum engri hættu á streitutengdum vandamálum, jafnvel þó að aðstæður þeirra séu mjög streituvekjandi. Ekki nóg með það heldur styrkist hjarta- og æðakerfið, heilinn þroskast hraðar, góðmennska eykst og samvinna og frammistaða batnar.
Í metsölubókinni The Upside of Stress fjallar heilsusálfræðingurinn Kelly McGonigal við Stanford háskóla um rannsóknir sem sýna að með því að breyta hugarfarinu og læra að skilja viðbrögð líkamans getum við nýtt streituna sem afl til að takast á við krefjandi aðstæður, í stað þess að líta eingöngu á hana sem ógn.
Í þessum magnaða fyrirlestri er sagt frá næstum því ótrúlegum rannsóknum og þar koma meðal annars við sögu systkinin kortisól, adrenalín, oxýtósín og útlenskur frændi þeirra DHEA, auk þess sem hungurhormónið ghrelín lætur á sér kræla.
Markmiðið er að þátttakendur öðlist nýja sýn á streitu og læri einfaldar, gagnreyndar leiðir til að takast á við álag og nýta streituviðbragðið sér til góðs. Því streita er ekki alltaf óvinurinn. Stundum getur hún verið einmitt það sem við þurfum til að takast á við áskoranir og ná árangri.
Fyrirlesari: Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun

