Skógarjóga er skemmtileg og endurnærandi blanda af gönguferð og einföldum jógaæfingum úti í náttúrunni. Í jóga er lögð áhersla á samspil líkama, hugar og sálar með það að markmiði að efla jafnvægi, styrk og vellíðan. Jóga getur hjálpað til við að losa um spennu, auka liðleika og líkamsvitund, draga úr streitu og stuðla að aukinni ró og orku.
Þótt jóga sé oftast stundað innandyra getur náttúran verið einstakur vettvangur fyrir slíka iðkun. Að komast í burtu frá daglegu áreiti, njóta kyrrðarinnar og beina athyglinni að eigin líðan getur verið góð leið til að endurhlaða batteríin og öðlast nýja orku.
Í skógarjóga er boðið upp á 40 til 60 mínútna gönguferð þar sem staldrað er við á völdum stöðum og gerðar einfaldar jóga-, teygju- og öndunaræfingar. Allar æfingar eru framkvæmdar standandi og því er hvorki þörf á jógadýnu né sérstökum búnaði. Ekki er nauðsynlegt að hafa fyrri reynslu af jóga.
Skógarjóga hentar einstaklega vel sem hluti af heilsuviku, starfsmannadögum eða til að brjóta upp hefðbundinn vinnudag. Hægt er að bjóða upp á eina gönguferð eða fleiri, allt eftir óskum og þörfum hópsins.
Fyrirlesari: Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir, jógakennari

