Að auka vellíðan í lífi og starfi
Námskeið sem henta öllum
Lengd:
Námskeiðslýsing
Jákvæð sálfræði er vísindaleg nálgun sem hefur það markmið að efla rannsóknir á jákvæðum þáttum mannlegrar hegðunar eins og styrkleikum, vellíðan, velgengni, þakklæti, seiglu, gildum (dyggðum), von, jákvæðum tilfinningum, tilgangi, bjartsýni og hamingju. Hún veltir fyrir sér hvað einkennir einstaklinga sem ná á farsælan hátt að þroskast og aðlagast ólíkum aðstæðum í lífinu og finnur leiðir til að skapa umhverfi þar sem einstaklingur nær að blómstra og lifa sínu besta lífi.
Á námskeiðinu er farið í hvað rannsóknir á hamingju einstaklinga hafa leitt í ljós og hvernig er hægt að mæla hana. Fjallað er um gagnreyndar leiðir til að auka vellíðan. Farið er í mikilvægi þess að þekkja og efla styrkleika sína en með því aukum við líkurnar á að við blómstrum og getum lifað okkar besta lífi.
Fyrir námskeiðið taka þátttakendur VIA styrkleikaprófið.
Leiðbeinandi
Meðal þess sem er tekið fyrir:
- Hvað er jákvæð sálfræði?
- Að þekkja styrkleika sína
- Að mæla hamingju fólks
- Þættir sem hafa áhrif á hamingju okkar
- Leiðir til að auka vellíðan
Ávinningur
- Aukin þekking á hagnýtum leiðum til að auka vellíðan
- Betri innsýn í eigin styrkleika
- Aukið vægi jákvæðra tilfinninga
- Aukin lífsgæði
Kennsluaðferðir
- VIA-styrkleikaprófið
- Fyrirlestur
- Umræður
- Verkefni