Betri tímastjórnun
Námskeið sem henta öllum
Lengd:
Námskeiðslýsing
Tíminn er merkilegt fyrirbæri. Við höfum öll jafn mikið af honum en samt virðumst við aldrei hafa nógan tíma til að gera allt sem við ætlum okkur. Við tökum endalaust að okkur verkefni og förum svo heim í lok vinnudags með þá tilfinningu að við náðum ekki að gera neitt.
Á námskeiðinu fá þátttakendur innsýn í hvernig þeir verja tíma sínum í dag og læra að forgangsraða verkefnum. Farið er í mikilvægi þess að skapa tíma fyrir mikilvægustu verkefnin með góðri skipulagningu og takast á við truflanir af ýmsum toga, eins og símtöl og tölvupóstinn. Tekin eru fyrir atriði eins og algengir tímaþjófar, skipulagning og áætlanagerð, góða fundarstjórn og sóun í verkefnum, samskiptum og stjórnun.
Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja læra aðferðir til að stjórna tíma sínum og sjálfum sér betur.
Leiðbeinandi
Meðal þess sem er tekið fyrir:
- Ytri og innri tímaþjófar
- Greining á því hvernig við notum tímann
- Mikilvægi forgangsröðunar
- Góð skipulagning og áætlanagerð
- Að takast á við truflanir af ýmsum toga
Ávinningur
- Betri skipulagning á eigin vinnu
- Betri forgangsröðun verkefna
- Meiri tími fyrir mikilvægustu verkefnin
- Meiri árangur og margfalt meiri afköst
- Minni streita og álag
Kennsluaðferðir
- Fyrirlestur
- Umræður
- Virk þátttaka