Fjölmenning á vinnustað
Námskeið fyrir vinnustaðinn
Lengd:
3 klst.
Námskeiðslýsing
Samskipti geta verið flókin en þegar við bætast hindranir eins og tungumálaörðugleikar eða annars konar skilningur á eðli hlutanna vegna ólíkrar menningar, uppruna, menntunar og viðhorfa vandast oft málið. Á Íslandi eru töluð u.þ.b. 65 tungumál nú um stundir og samfélag okkar hefur tekið algjörum stakkaskiptum. Ásýnd landsins hefur breyst og meiri fjölbreytni ríkir nú en áður í menningarlegu tilliti. Margt fólk hefur sótt hingað til lands í leit að atvinnu og tækifærum alls staðar að úr heiminum. Flestir koma frá Austur-Evrópu og Asíu en auk þess er hér mikill fjöldi fólks frá hinum Norðurlöndunum, öðrum Evrópulöndum og Suður-Ameríku.
Íslendingar hafa hingað til átt gott með að eiga samskipti við aðrar þjóðir og þótt samskiptin taki á sig aðra mynd þegar fólk af öðru þjóðerni tekur sig upp og flytur hingað, ýmist tímabundið eða til frambúðar, verða líka árekstrar og ýmsir sjá fyrir sér vandamál og erfiðleika á meðan aðrir sjá tækifæri og fjölbreytileika sem auðga mannlífið.
Þetta námskeið er fyrir þá sem vilja bæta samskiptin og öðlast betra sjálfsöryggi á fjölmenningarlegum vinnustað.
Meðal þess sem tekið er fyrir:
- Fordómar gagnvart Íslendingum og útlendingum
- Árekstrar sem rekja má til viðhorfa
- Hvað er líkt og ólíkt með menningarheimum?
- Menningarvíddir Geert Hofstede
Ávinningur
- Jákvæðari samskipti
- Aukinn skilningur
- Meiri samheldni
- Meiri vellíðan á vinnustað
Leiðbeinandi
Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun