Viðverusamtalið
Námskeið fyrir stjórnendur
Lengd:
3 klst.
Námskeiðslýsing
Viðverusamtal er verkfæri sem nýtist við markvissa stjórnun fjarvista og forvarnarstarf á vinnustöðum. Tilgangur viðverusamtals er m.a. að draga úr fjarveru, finna ástæður fyrir fjarveru sem hægt er að hafa áhrif á, breyta menningu á vinnustað er kemur að fjarvistum og tryggja samræmd vinnubrögð.
Markmiðið með viðverusamtali er að tryggja breytingu á hegðun starfsmanns eða viðleitni hans til að takast á við ástæður fjarvista. Samtalið er formlegur vettvangur þar sem stjórnandi og starfsmaður fara yfir stöðu fjarvista og ræða m.a. aðstæður á vinnustað, verkefni, vinnufyrirkomulag, vinnuumhverfi, samskipti og fleiri atriði sem geta haft áhrif á líðan starfsmannsins.
Á námskeiðinu er m.a. farið í samtalstækni í viðverusamtali. Þátttakendur taka þátt í hagnýtum æfingum auk þess sem farið er í samtalsrammann og gerð áætlunar.
Leiðbeinandi
Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun
Meðal þess sem er tekið fyrir:
- Ávinningur viðverusamtala
- Mismunandi tegundir af spurningum
- Samkennd og virk hlustun
- Að búa til ramma fyrir samtalið
- Að gera áætlun og fylgja henni eftir
Ávinningur
- Samræmdir vinnuferlar
- Aukin vellíðan starfsmanna
- Skýrt verklag um tilkynningu fjarvista
- Gripið er inn í markvisst
- Tíðum fjarvistum er fylgt eftir
Kennsluaðferðir
- Fyrirlestur
- Umræður
- Verkefni