Samskiptastílar - MBTI

Námskeiðið hentar öllum

29.500 kr.

15. október kl. 9-12

Námskeiðslýsing

Öll erum við einstök en samt svo lík. Munurinn á okkur veldur því m.a. að okkur gengur betur að ná til sumra en annarra. Lykilatriði í öllum samskiptum er að vita hvernig fólk hegðar sér og af hverju það gerir það sem það gerir. 

Ein þekktasta aðferðin til greiningar á samskiptastílum er byggð á kenningu Carl Gustaf Jung um sálfræðilegar týpur. Kenningin gefur innsýn í hegðun og samskiptamáta fólks. Gerð er greinarmunur á 16 sálfræðilegum týpum út frá fjórum þáttum. Þekking á þessum eðlislæga mismun milli einstaklinga opnar nýjar víddir og eykur skilning, umburðarlyndi og árangur í samskiptum.

Á námskeiðinu svara þátttakendur stuttum spurningalista, fluttur er fyrirlestur um kenninguna og farið er í æfingar sem draga fram muninn milli einstaklinganna. Samskipti við vinnufélaga, ættingja, maka og viðskiptavini verða aldrei eins eftir þetta námskeið.

Leiðbeinandi

Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Meðal þess sem er tekið fyrir:

  • Munur á milli einstaklinga.
  • Algengur misskilningur í samskiptum.
  • Ólíkar leiðir fólks í samskiptum.
  • Leiðir til að vinna með ólíku fólki.

Ávinningur

  • Aukinn skilningur á eigin samskiptastíl og annarra.
  • Þekking á algengum vandamálum í samskiptum.
  • Meiri þekking á eðlislægum styrkleikum.
  • Meira umburðarlyndi og ánægjulegri samskipti.

Kennsluaðferðir

  • Spurningalisti
  • Fyrirlestur
  • Umræður
  • Æfingar
Samskiptastílar - MBTI Námskeiðið hentar öllum 15. október kl. 9-12 Námskeiðslýsing Öll erum við einstök en samt svo lík. Munurinn á okkur veldur því m.a. að okkur gengur betur að ná til sumra en annarra. Lykilatriði í öllum samskiptum er að vita hvernig fólk hegðar sér og af hverju það gerir það sem það gerir.  Ein þekktasta aðferðin til greiningar á samskiptastílum er byggð á kenningu Carl Gustaf Jung um sálfræðilegar týpur. Kenningin gefur innsýn í hegðun og samskiptamáta fólks. Gerð er greinarmunur á 16 sálfræðilegum týpum út frá fjórum þáttum. Þekking á þessum eðlislæga mismun milli einstaklinga opnar nýjar víddir og eykur skilning, umburðarlyndi og árangur í samskiptum. Á námskeiðinu svara þátttakendur stuttum spurningalista, fluttur er fyrirlestur um kenninguna og farið er í æfingar sem draga fram muninn milli einstaklinganna. Samskipti við vinnufélaga, ættingja, maka og viðskiptavini verða aldrei eins eftir þetta námskeið. Leiðbeinandi Eyþór Eðvarðsson, MA í vinnusálfræði og þjálfari hjá Þekkingarmiðlun ehf. Meðal þess sem er tekið fyrir: Munur á milli einstaklinga. Algengur misskilningur í samskiptum. Ólíkar leiðir fólks í samskiptum. Leiðir til að vinna með ólíku fólki. Ávinningur Aukinn skilningur á eigin samskiptastíl og annarra. Þekking á algengum vandamálum í samskiptum. Meiri þekking á eðlislægum styrkleikum. Meira umburðarlyndi og ánægjulegri samskipti. Kennsluaðferðir Spurningalisti Fyrirlestur Umræður Æfingar
Dimension (L x W x H) 20 x 15 x 10 Inch
Weight 900 Gram