Samskiptastílar - MBTI
Námskeið fyrir vinnustaðinn
Lengd:
Námskeiðslýsing
Öll erum við einstök en samt svo lík. Munurinn á okkur veldur því m.a. að okkur gengur betur að ná til sumra en annarra. Lykilatriði í öllum samskiptum er að vita hvernig fólk hegðar sér og af hverju það gerir það sem það gerir.
Ein þekktasta aðferðin til greiningar á samskiptastílum er byggð á kenningu Carl Gustaf Jung um sálfræðilegar týpur. Kenningin gefur innsýn í hegðun og samskiptamáta fólks. Gerð er greinarmunur á 16 sálfræðilegum týpum út frá fjórum þáttum. Þekking á þessum eðlislæga mismun milli einstaklinga opnar nýjar víddir og eykur skilning, umburðarlyndi og árangur í samskiptum.
Á námskeiðinu svara þátttakendur stuttum spurningalista, fluttur er fyrirlestur um kenninguna og farið er í æfingar sem draga fram muninn milli einstaklinganna. Samskipti við vinnufélaga, ættingja, maka og viðskiptavini verða aldrei eins eftir þetta námskeið.
Meðal þess sem er tekið fyrir:
- Munur á milli einstaklinga.
- Algengur misskilningur í samskiptum.
- Ólíkar leiðir fólks í samskiptum.
- Leiðir til að vinna með ólíku fólki.
Ávinningur
- Aukinn skilningur á eigin samskiptastíl og annarra.
- Þekking á algengum vandamálum í samskiptum.
- Meiri þekking á eðlislægum styrkleikum.
- Meira umburðarlyndi og ánægjulegri samskipti.